Published by benni on 24 Feb 2011
25% afsláttur af STEF gjöldum til framhaldsskóla
Við hjá Radio.is tókum okkur til og ræddum við STEF um sífelt hækkandi gjaldskrá þeirra…
Úr bréfi frá STEF :
” Skv. gjaldskrá STEFs eru höfundaréttargjöld fyrir svæðisbundna útvarpsstöð um 35.000 fyrir eina viku, enda sé útvarpsstöðin ekki rekin í hagnaðarskyni. Við höfum hingað til veitt 25% afslátt til framhaldsskóla þegar haldnir eru tónleikar eða dansleikir á þeirra vegum og erum við tilbúin að veita sama afslátt til framhaldsskólanna af gjaldskránni vegna tímabundinna útvarpsstöðva. Myndi gjaldið í eina viku þá lækka í u.þ.b. 26.000 kr. Mun þessi breyting taka þegar í stað gildi.”
Fyrir hönd Nemendafélaga framhaldsskóla, Þakkar Radio.is STEF þessa ákvörðun.
Í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu þá verður þetta, ásamt fyrirhuguðum gjaldskrár breytingum Radio.is, kærkomin sparnaður fyrir skólafélögin.
Nú á dögunum var opnum samsýning í Geðarsafni. Helga Björg Gylfadóttir leitaði til okkar með þá hugmynd að vilja senda út útvarpsstöð í skipi í um eina klukkustund. Með aðstoð Björgunarsveitar Hafnarfjarðar varð þessi hugmynd að veruleika laugardaginn 11.september síðastliðinn. Er þetta í fyrsta skipti sem Radio.is tekur þátt í útvarpssendingum af skipi. Útsending heppnaðist afar vel.